
Garðurinn tekur vel á móti hópum og býður upp á hóparými fyrir 10–30 manns.
Hóparýmin eru þrjú og taka 10-12 sitjandi gesti hvert, hægt er að opna á milli rýmanna og þá eru sæti fyrir allt að 30 manns. Svæðið má hafa opið eða lokað með tjöldum, allt eftir því hvort óskað er eftir meiri nálægð við lífið í mathöllinni eða fullkomnu næði fyrir hópinn.
Hóparýmin okkar eru staðsett hjá Djúsí Sushi, og mun starfsfólk þeirra vísa ykkur til sætis við komu.

