
NTV bókhald og þjálfun býður upp á almenna bókhaldsþjónustu fyrir öll félög hvort sem þau eru lítil eða stór.
Það sem við gerum öðruvísi er við erum með vinnustofur alla miðvikudaga frá 16-19 þar sem bókhald er unnið undir leiðsögn.
NTV bókhald býður upp á einkakennslu þar sem farið er vel yfir bókhaldið og lögð áhersla á að þú fáir góða yfirsýn yfir reksturinn. Þér er kennt að færa bókhaldið fyrir þitt félag að hluta eða í heild. Eins kennum við á flest öll bókhaldskerfi.
Við bjóðum upp á að mæta í fyrirtæki ef það þarf að koma starfsmanni inn í starf eða jafnvel ef félagið var að skipta um bókhaldskerfi þá bjóðum við upp á að kenna starfsfólki réttu handtökin í byrjun svo nýja bókhaldskerfið vinni vel og hratt með starfsfólkinu. Við tökum að okkur afleysingu ef þarf að brúa bilið.
Við veitum líka ráðgjöf, hvernig rekstrarform hentar og hvaða bókhaldskerfi er best að nota miðað við reksturinn.

Hvar erum við?
Heimilisfang
Opnunartímar
