
Nutriment Reykjavík var stofnað af Dögg Guðmundsdóttur, klínískum næringarfræðingi.
Markmið ráðgjafarinnar er að efla næringarlæsi, bæta heilsu og styrkja gagnrýna hugsun hvers og eins. Móttaka einstaklinga er ávallt persónuleg og hvert verkefni byggt á traustum vísindalegum grunni. Lykilatriði er jákvæð upplifun sem dýpkar þekkingu og styrkir einstaklinginn til að taka upplýstar ákvarðanir um eigin heilsu og lífsstíl.
Markmiðið er ekki aðeins að stuðla að bættri heilsu, heldur einnig að ferðalagið þangað sé ánægjulegt og hvetjandi.

