Þula Hafnartorg
Þula Hafnartorg
Bóka þjónustu
Staðsetning

Þula Hafnartorg

Gallerí og sýningarrými

Þula Hafnartorg

Þula Hafnartorg

Þula er rótgróið gallerí með yfir tíu ára reynslu í að kynna og styðja bæði viðurkennda og upprennandi listamenn á sviði samtímalistar. Frá stofnun árið 2013 sem Hverfisgallerí og með sameiningu í Þulu árið 2023, hefur galleríið markvisst unnið að því að skapa vettvang fyrir framúrskarandi myndlist og dýpka skilning á þróun samtímalistar á Íslandi.


Aðalrými Þulu er staðsett í Marshallhúsinu í Reykjavík, þar sem reglulegar sýningar eru haldnar yfir árið í samstarfi við listamenn gallerísins ásamt öðrum valinkunnum listamönnum. Árið 2025 opnar Þula nýtt sýningarrými á Hafnartorgi við Bryggjugötu – vettvang sem sameinar sýningarrými og faglega ráðgjöf. Þar býðst einstaklingum og fyrirtækjum sérsniðin þjónusta við val á listaverkum með það að markmiði að efla tengingu fólks við myndlist og auðvelda aðgengi að vönduðu listaverkavali. Einnig bjóðum við upp á ráðgjöf og aðstoð við upphengi á listaverkum.


Listamenn Þulu eru:


Kristín Morthens,

Guðmundur Thoroddsen,

Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir

Davíð Örn Halldórsson

Auður Lóa Guðnadóttir,

Lilja Birgisdóttir,

Tolli Morthens,

Sunneva Ása Weisshappel,

Rakel McMahon,

Anna Maggý

Þjónustur

Listaverkaráðgjöf - Einstaklingar

Listaverkaráðgjöf - Einstaklingar

45 mín
Listaverkaráðgjöf - Fyrirtæki

Listaverkaráðgjöf - Fyrirtæki

45 mín
Kristín Helga Ríkharðsdóttir: Data gígar / Data Craters | Þula Hafnartorg

Kristín Helga Ríkharðsdóttir: Data gígar / Data Craters | Þula Hafnartorg

Hafa samband

Þula Hafnartorg
Þula Hafnartorg
Sími:
547-9898
Heimilisfang
Bryggjugata 6
Skoða á Google Maps